Vinningstillögur kynntar í samkeppni um hönnun Krossamýrartorgs

Klasi fasteignaþróunarfélag fyrir hönd dótturfélags síns Borgarhöfða fasteignaþróunar II ehf. efndi til hönnunarsamkeppni um Krossamýrartorg (reit 9A) seinnihluta árs 2022 með það að markmiði að finna metnaðarfullt hönnunarteymi með hugmyndir að vandaðri og góðri byggingarlist fyrir reitinn í heild sinni.

Samkeppnin átti að leiða til bestu mögulegu hönnunar á nútíma skrifstofuhúsnæði, fjölnota samkomuhúsi og aðaltorgi hverfisins fyrir framtíðar íbúa, gesti og starfsfólk.

Niðurstaða dómnefndar er að tilnefna tvær tillögur sem verðlaunatillögur. Það er annarsvegar tillaga Henning Larsen og hins vegar tillaga Hille Melbye og Sen & Son. Tillögurnar stóðu upp úr hvor á sinn hátt eftir mikla greiningarvinnu dómnefndar.

Um var að ræða hönnunarsamkeppni í tveimur þrepum. Fyrra þrep keppninnar var forval þar sem stofur og teymi sóttu um þátttöku. Mikill áhugi var á samkeppninni og sóttu 18 stofur og teymi um þátttöku frá öllum Norðurlöndum. Valnefnd frá verkkaupa valdi fimm teymi til að taka þátt í seinna þrepinu og skila inn tillögum fyrir reitinn í samræmi við samkeppnislýsingu.

Teymin sem tóku þátt í seinna þrepi keppninnar voru A_Lab Architects, Helin & Co Architects, Henning Larsen Architects , Sen & Son ásamt Hille Melbye og Nordic Office of Architecture.

 

Tillaga Sen & Son og Helle Melbye

Tillaga Henning Larsen

Tillaga Henning Larsen í hönnunarsamkeppni um Krossamýrartorg á vegum Klasa

Markmið samkeppninnar

Ártúnshöfði hefur síðustu áratugi verið athafna- og iðnaðarsvæði en starfsemin er í dag víkjandi fyrir blandaðri byggð atvinnu og íbúða. Borgarhöfði á Ártúnshöfða við Elliðaárvog er næsta uppbyggingarhverfi í Reykjavík og er skilgreint sem miðsvæði í aðalskipulagi Reykjavíkur. Svæðið mun á næstu árum taka miklum breytingum og verða þétt borgarmiðað hverfi með lífvænlega byggð þar sem fólk er í fyrsta forgangi. Byggð sem er félagslega, umhverfislega og efnahagslega sjálfbær.

Áætlað er að fullbyggt hverfi á Ártúnshöfða geti rúmað allt að 8 þúsund íbúðir eða um 15.000 íbúa, leik- og grunnskóla, fjölnota samkomuhús ásamt annarri fjölbreyttri atvinnustarfsemi sem er vel tengd stofnbrautum, almenningssamgöngum og stígakerfi Reykjavíkur. Borgarlínan mun ganga í gegnum miðju hverfisins og fyrsti áfangi hennar er að tengja svæðið beint við miðborgina.

Markmið Klasa með samkeppninni var að finna metnaðarfullt hönnunarteymi með hugmyndir að vandaðri og góðri byggingarlist fyrir reitinn í heild sinni. Samkeppnin atti að leiða til bestu mögulegu hönnunar á nútíma skrifstofuhúsnæði, fjölnota samkomuhúsi og aðaltorgi hverfisins fyrir framtíðar íbúa, gesti og starfsfólk.

Markmið samkeppninnar var að fá metnaðarfullar hugmyndir að hönnun nútíma skrifstofuhúsnæði, fjölnota samkomuhúsi og Krossamýrartorgi þar sem byggingar og torg flæða saman og mynda eina heild. Áhersla á að vera á allar helstu kröfur framtíðar í byggingum af þessu tagi s.s. sveigjanleika, fjölbreytileika, sjálfbærni og umhverfisáherslur, flæði og aðgengi, upplifun, sköpun og gæði. Tillagan átti að sýna metnaðarfulla hönnun sem þjónustar íbúa, starfsfólk, viðskiptavini sem og aðra gesti hverfisins í framtíðinni. Byggingarnar áttu að vera vera vandaðar, njóta sín vel í umhverfi sínu og skapa heildaryfirbragð með Krossamýrartorgi. Áhersla var á umhverfissjónarmið og sjálfbærni í hönnun, efnisvali og rekstri sem og hagkvæmni með tilliti til framkvæmdakostnaðar, reksturs og notagildis. Æskilegt var talið að tillagan samræmist gildandi deiliskipulagi og að hún væri raunhæf í uppbyggingu.

Nánar um hönnunarsamkeppnina

Til baka

Aðrar fréttir

Klasi hefur uppbyggingu 133 íbúða á Eirhöfða 8.
Lífsgæðakjarni á Borgarhöfða
Fjölmiðlaumfjöllun um Borgarhöfða á visir.is

Vefhönnun og vinnsla: ONNO ehf.