
Uppbygging atvinnuhúsnæðis við Krossamýrartorg miðast að því að skapa fallega nútímalega umgjörð þar sem mannlíf getur þrifist. Svæðið er í hjarta nýs íbúðahverfis á Borgarhöfða en jafnframt í miðri höfuðborg og skammt frá stofnbrautum.
Samtals 980 stæði verða í opinni bílgeymslu undir Eirhöfða 2, Breiðhöfða 10a, 10b og 10c.
Á fyrsta uppbyggingarsvæði Borgarhöfða, skipulagssvæði 1, verða allt að 1.570 íbúðir og um 2.037 bílastæði. Þar af verða um 1.175 leigustæði neðanjarðar og um 200 samnýtt á yfirborði.
